Almar Atlason og samherjar hans í Miami RedHawks unnu góðan sigur á SMU í nótt með 89 stigum gegn 79 í úrslitakeppni háskólakörfuboltans.
Almar spilaði 24 mínútur í leiknum og skilaði 12 stigum ásamt því að taka 5 fráköst og gefa þrjár stoðsendingar. Sigurinn var sá þrítugasti og annar á tímabilinu en liðið hefur aðeins tapað einum leik á þessu keppnistímabili. Almar nýtti skottilraunir sínar utan af velli til að á meðan hann var inni á vellinum. Liðið heldur nú áfram í næstu umferð mótsins þar sem verkefnið verður að mæta liði Tennessee strax í nótt.





