HomeNeðri deildir1. deild karlaAuglýsa eftir formanni

Auglýsa eftir formanni

Körfuknattleiksfélag Selfoss auglýsir eftir kröftugu fólki í stjórn, en núverandi formaður gefur ekki kost á sér áfram. Áhugasamir eru hvattir til að bjóða sig fram til formanns eða stjórnarsetu með því að senda póst á [email protected] fyrir 24. mars. Aðalfundur félagsins fer fram sama dag kl. 18:00 í Vallaskóla.

Fréttatilkynning frá Selfoss Karfa

Aðalfundur Körfuknattleiksfélags Selfoss verður haldinn í Vallaskóla á Selfossi þriðjudaginn 24. mars 2026 kl: 18:00.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi í samræmi við 8. grein laga félagsins :

1. Formaður setur fund.

2. Kosinn fundarstjóri.

3. Kosinn fundarritari.

4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.

5. Lögð er fram skýrsla félagsins.

6. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir skoðaða reikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.

7. Lagabreytingar (ef einhverjar).

8. Kosning stjórnar

• a. Kosning formanns

• b. Kosning sex annarra stjórnarmanna.

• c. Kosning tveggja skoðunarmanna.

9. Gjaldkeri leggur fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.

10. Önnur mál.

Hvetjum áhugasama til að mæta.

– Stjórnin

Fréttir
- Auglýsing -