HomeFréttirLengjan býður á landsleikinn - Ísland tekur á móti Portúgal í Ólafssal

Lengjan býður á landsleikinn – Ísland tekur á móti Portúgal í Ólafssal

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir liði Portúgals í Ólafssal næstkomandi þriðjudag í öðrum glugga undankeppni EuroBasket 2027.

Þrátt fyrir að hafa sýnt fína kafla í fyrstu þremur leikjum sínum í keppninni á Ísland enn eftir að innbyrða sinn fyrsta sigur. Þegar liðin mættust síðast í nóvember hafði Portúgal nokkuð örugga yfirburði, en íslenska liðið mætir nú til leiks staðráðið í að snúa blaðinu við á heimavelli og nýta þann kraft sem fylgir stuðningi áhorfenda.

Hérna er heimasíða keppninnar

Körfuboltaáhugafólk er hvatt til að mæta og styðja við bakið á stelpunum okkar, en það er Lengjan sem býður landsmönnum frítt á leikinn í Ólafssal. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá fremstu körfuboltakonur þjóðarinnar berjast fyrir sæti á stærsta sviði Evrópu í spennandi umgjörð. Vonast er eftir miklum fjölda á palla til að skapa þá stemningu sem þarf til að knýja fram mikilvægan sigur gegn sterku liði Portúgals.

Hérna er viðburðurinn á Facebook

Fréttir
- Auglýsing -