Aukasendingin fékk vini þáttarins Heisa Högg og Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Bónus deild karla, hvaða leikmenn eru mikilvægastir í hverju liði og hvaða leikmenn ættu að leita sér að frekari áskorun í sumar. Þá eru einnig til umræðu landsleikir kvenna en Ísland leikur heima í Ólafssal þriðjudaginn 17. mars gegn Portúgal.
Þá er einnig til umræðu hvaða leikmenn Bónus deildarinnar liðin ættu að horfa til að byggja lið sín í kringum. Hvort sem það eru liðin sem þeir eru í núna eða önnur lið sem gætu náð í þá og byggt leikmannahópa sína í kringum þá.
Þegar horft er til framtíðar í íslenskum körfubolta vaknar oft sú spurning hvaða leikmenn búa yfir þeim hæfileikum og karakter að hægt sé að líta á þá sem hornsteina heils liðs. Listi yfir líklegustu fimm leikmennina sem „franchise“ leikmenn var til umræðu í síðustu Aukasendingu, þar sem hæfileikar og leiðtogahæfni vógu þungt.

Fimm leikmenn fyrir lið til að byggja í kringum
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR
- Sigurður Pétursson – Álftanes
- Hilmar Pétursson – Keflavík
- Júlíus Orri Ágústsson – Tindastóll
- Styrmir Jónasson – ÍA
Í efsta sæti listans situr Þórir Guðmundur Þorbjarnarson úr KR, sem hefur sannað gildi sitt sem einn fjölhæfasti leikmaður landsins. Fast á hæla hans koma bræðurnir Sigurður Pétursson úr Álftanesi og Hilmar Pétursson úr Keflavík, en báðir hafa sýnt að þeir hafa gæði og leiðtogahæfni sem lið geta byggt á. Í fjórða og fimmta sæti eru þeir Júlíus Orri Ágústsson úr Tindastóli og Styrmir Jónasson úr ÍA, sem báðir þykja gríðarlega spennandi kostir vegna sviparða ástæðna.

Þótt ofangreindir fimm leikmenn skipi efstu sætin, var samkeppnin gríðarlega hörð og ljóst að nokkrir öflugir leikmenn hefðu auðveldlega getað verið á listanum. Ástæða þess að leikmenn á borð við Veigar Pál úr Njarðvík, Hilmar Smára og Orra Gunn úr Stjörnunni og Braga Guðmundsson úr Ármanni enda utan listans að þessu sinni er sú að gera má ráð fyrir að þeir haldi í atvinnumennsku á næstunni. Sem vandar málið aðeins þegar horft er til þess hvort æskilegt væri að byggja heil lið í kringum þá.
Umræðuna um mögulega hornsteina má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.





