Það var hreinasta úrslitakeppnishamingja– eða martröð, eftir því hvar í liði maður stóð – í Icelandic Glacial höllinni í kvöld.
Í húfi var nánast ekkert minna en sæti í efstu deild karla, þar sem Þór Þorlákshöfn og Ármann mættust í baráttu sem gæti ráðið úrslitum um það hvaða lið þarf að taka fúla fetið niður í 1. deild að tímabili loknu. Eftir æsispennandi viðureign voru það gestirnir úr Laugardalnum sem fögnuðu dýrmætum fimm stiga sigri, 79–74.
Karfan spjallaði við Braga Guðmundsson leikmann Ármanns eftir leik í Þorlákshöfn, en hann setti 31 stig í leiknum.





