Álftanes tók á móti ÍR í Kaldalónshöllinni í kvöld í þriðju síðustu umferð Íslandsmótsins í Bónusdeild karla. Þessi leikur var mjög mikilvægur þar sem ÍR gat tryggt sig í topp 8 í deildinni og þar með í úrslitakeppnina á meðan að Álftanes þurfti að vinna til að halda ÍR fyrir neðan sig og eiga þannig betri möguleika á úrslitakeppnissæti.
ÍR náðu snemma forystunni en Álftnesingar voru fljótir að koma til baka og leikurinn var í járnum alveg fram á síðustu mínútur. ÍR-ingar náðu hins vegar fleiri góðum leikfléttum undir lokin og unnu leikinn 89-93.
Gangur leiks
ÍR hóf leikinn talsvert betur og náðu strax 3-10 stöðu eftir tvær mínútur. Álftnesingar tóku hins vegar fljótlega við sér og leikurinn orðinn jafn 5 mínútum síðar. Raunar var fyrsti leikhlutinn dálítið sveiflukenndur, enda tóku Breiðhyltingar 11-3 áhlaup um leið og Álftnesingar höfðu jafnað í stöðuna 20-20. Staðan því 23-31 eftir tíu mínútur.
Álftanes átti betri annan leikhluta en gestirnir og flestir í þunnskipuðu liði heimamanna lögðu hönd á plóg. Staðan var því orðin 52-54 í hálfleik.
Seinni hálfleikur var nokkuð jafn framan af sem sást best á því að munurinn var aldrei meiri en 5 stig fyrstu átta mínúturnar í þriðja leikhluta. Áfram voru liðin bæði að vinna vel saman og stigaskorið að dreifast nokkuð jafnt. Staðan í lok þriðja: 76-79, ÍR í vil.
Álftnesingar komu öflugir inn í lokaleikhlutann og náðu forystunni um miðbik hans en urðu hrikalega óheppnir og slúttuðu illa undir lokin og leikurinn endaði þannig að ÍR vann leikinn 89-93.
Tölfræði leiksins
Vendipunkturinn
Í stöðunni 88-83 hættu Álftnesingar skyndilega að framkvæma hlutina rétt og hittu ekki úr neinu. Fjölmargir tapaðir boltar og skot sem fóru ekki niður sneru leiknum og ÍR skoraði 10 stig gegn einu stigi hjá Álftanesi seinustu 4 mínútur leiksins. ÍR-ingar voru líka að gera mistök á þessum síðustu mínútum en Álftanes gat ómögulega refsað gestunum fyrir mistökin.
Úrslita atburðurinn var þegar staðan var 89-91 með 15 sekúndur eftir og Álftanes tekur leikhlé. Þeir taka í framhaldinu of langt innkastkerfi sem endar í töpuðum bolta vegna þess að heimamenn gátu ekki komið boltanum í leik á fimm sekúndum. Svo fór sem fór.
Atkvæðamestir
Hjá ÍR var Dimitrios Klonaras atkvæðamestur með 23 stig (53% skotnýting, nokkuð gott), 10 fráköst og 4 stoðsendingar (og framlagshæstur allra í leiknum með 30 framlagsstig).
Í Álftanesi var David Okeke drjúgastur með 24 stig (69% skotnýting) og 9 fráköst. Justin James var merkilega nálægt þrefaldri tvennu með 18 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar.
Kjarninn
ÍR hefur gulltryggt úrslitakeppnissæti en þó ekki hvar í topp 8 liðunum. Þeir hafa skv. liðinu náð yfirlýstu markmiði tímabilsins en geta tryggt stöðuna sína í 7. sæti úrslitakeppninnar með sigri í síðustu tveimur leikjum tímabilsins.
Álftanes hefur með þessu tapi snarminnkað líkur sínar á að verða í úrslitakeppninni í ár og eiga mögulega ennþá lítinn séns á að falla. Þeir geta hinsvegar tryggt sig frá falli með aðeins einum sigri í seinustu tveim leikjum sínum.





