HomeFréttirBæjarins Beztu mót Breiðabliks 11.-12. apríl - Skráning hafin

Bæjarins Beztu mót Breiðabliks 11.-12. apríl – Skráning hafin

Skráning er hafin á Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 2026 sem verður haldið í Smáranum, Fagralundi og íþróttahúsi Kársnesskóla helgina 11.-12. apríl nk.

Um er að ræða stórskemmtilegt körfuboltamót fyrir krakka fædda 2016-2021 (MB 4-9 ára). Skráningarfrestur er til kl. 23:30 fimmtudagskvöldið 26. mars nk.

  • Hvert lið leikur a.m.k. 4 leiki
  • 1×12 mín hver leikur
  • 4-7 ára spilar 3 á 3
  • 8-9 ára spilar 4 á 4
  • Gjöf frá Bæjarins Beztu að móti loknu
  • Þátttökugjald er 3.800 kr. á hvern leikmann

Hér má finna hlekk að skráningu: Skráning á Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 2026.

Þátttökugjöld leggjast inn á eftirfarandi reikning fyrir kl. 23:30 fimmtudagskvöldið 9. apríl nk.

  • Kennitala: 630692-2109
  • Reikningsnúmer: 0536-14-700138

Vinsamlegast sendið kvittun á [email protected].

Mikilvægt er að forsvarsmaður félags/liðstjóri/þjálfari gangi frá greiðslu fyrir allt sitt lið/félag í einu.

Ekki er tekið við greiðslum fyrir einstaka leikmenn.

Nánari upplýsingar um mótið veitir Mikael Máni yfirþjálfari í gegnum [email protected].

Fréttir
- Auglýsing -