Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur náð samkomulagi við Pálma Þór Sævarsson um að taka að sér þjálfun meistaraflokks karla út yfirstandandi tímabil. Pálmi er mikill reynslubolti innan félagsins og þarf tæpast að kynna hann fyrir Borgnesingum enda hefur hann komið að starfi deildarinnar til margra ára sem leikmaður, stjórnarmaður, þjálfari og dyggur stuðningsmaður.
Hann tekur við stjórn liðsins þegar í stað og mun starfa náið með Orra Jónssyni aðstoðarþjálfara við stjórnun meistaraflokksins. Fyrsta verkefni nýs þjálfara er leikur gegn KV sem fram fer í Fjósinu næstkomandi föstudag klukkan 19:15 og er því von á mikilli spennu í Borgarnesi.





