Aukasendingin fékk vini þáttarins Heisa Högg og Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Bónus deild karla, hvaða leikmenn lið ættu að byggja lið sín í kringum og hvaða leikmaður er mikilvægastur hjá hverju liði Bónus deildar karla. Þá eru einnig til umræðu landsleikir kvenna sem eru nú á miðvikudag úti gegn Serbíu og heima í Ólafssal þriðjudaginn 17. mars gegn Portúgal.
Þá er einnig til umræðu hvaða leikmenn þurfi að finna sér ný tækifæri hjá nýjum félögum í sumar. Um er að ræða leikmenn sem hafa gert gífurlega vel í sínum hlutverkum með sínum liðum á yfirstandandi tímabili og ættu að finna sér frekari áskorun á nýjum stöðum á næsta tímabili.
Hér fyrir neðan má sjá lista fimm leikmanna sem talið er líklegt að leiti sér að frekari áskorun í sumar, en ásamt þeim fimm telur Aukasendingunni einnig upp sjö aðra sem allt eins gætu verið á listanum.
Umræðuna um hvaða leikmenn ættu að róa á ný mið má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.
5 sem ættu að finna sér nýja áskorun í sumar
- Elvar Már Friðriksson / Anwil Włocławek
- Lars Erik Bragason / KR
- Veigar Páll Alexandersson / Njarðvík
- Bragi Guðmundsson / Ármann
- Styrmir Jónasson / ÍA





