HomeFréttirHvað gerir íslenska liðið í Novi Sad?

Hvað gerir íslenska liðið í Novi Sad?

Íslenska landsliðið mun kl. 17:00 mæta Serbíu í undankeppni EuroBasket 2027.

Heimaleikinn gegn Serbíu lék Ísland þann 12. nóvember síðastliðinn og vann serbenska liðið hann nokkuð örugglega, 59-84.

Leikurinn fer fram í Novi Sad í Serbíu og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Ein breyting var gerð á leikmannahópi Íslands í gær þar sem Kristrún Ríkey Ólafsdóttir kom inn í liðið fyrir meidda Ástu Júlíu Grímsdóttur.

Hérna er heimasíða mótsins

Hér fyrir neðan má sjá lið Íslands í kvöld.

Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík

Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR

Danielle Rodriguez – Njarðvík

Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík

Kolbrún María Ármannsdóttir – TK Hannover Luchse

Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR

Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík

Sigrún Björk Ólafsdóttir – Haukar

Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar

Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík

Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar

Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur

Fréttir
- Auglýsing -