Aukasendingin fékk vini þáttarins Heisa Högg og Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Bónus deild karla, hvaða leikmenn lið ættu að byggja lið sín í kringum, hvaða leikmenn gætu farið á betri staði í sumar og hvaða leikmaður er mikilvægastur hjá hverju liði Bónus deildar karla.
Þá eru einnig til umræðu landsleikir kvenna sem eru nú á miðvikudag úti gegn Serbíu og heima í Ólafssal þriðjudaginn 17. mars gegn Portúgal.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.





