HomeBónus deildinBónus deild karlaValur sigraði KR í svakalegum leik

Valur sigraði KR í svakalegum leik

19. umferð Bónusdeildar karla lauk í kvöld með tveimur leikjum, annar þessara leikja var rísa Reykjavíkurslagur, á milli Vals og KR.  Það mátti búast við hörkuleik, bæði út af sögu þessara liða og einnig þá er KR heitasta liðið í dag og Valsmenn verða hreinlega að vinna til að halda í heimavallaréttinn. Leikurinn gríðarlega skemmtilegur, alvöru grannaslagur, allir leikhlutar jafnir og spennandi, það fór þó svo að Valur kreisti út sigur 92-90 eftir framlengingu.

Fyrsti leikhlutinn var mjög jafn ,eins og við var að búast, bæði lið með í kringum 40% skotnýtingu,  Bæði lið voru meira að sækja á hringinn frekar en að taka þriggja stiga skot. Eina þriggja stiga karfa Valsmanna var frá Kristó. Það var síðan ánægjulegt að sjá Svala aftur á gólfinu eftir löng meiðsli. En Valur fór með eins stigs forskot úr fyrsta leikhluta, 19-18.

Það var sama jafnræðið í öðrum leikhluta, skotnýtingin skánaði aðeins, bæði lið óánægð þegar dæmt var gegn þeim og allt eins og á að vera í þessum nágrannaslag. Það var ekki fyrr en í blálokin að Valsmenn náðu upp 7 stiga forystu, en með góðri þriggja stiga körfu á síðustu sekundunni, náðu KR að minnka muninn í 4 stig, Valur leiddi í hálfleik 45-41.

Enn var mikið jafnræði með liðunum, Valsmenn héldu forystunni en KR voru alltaf rétt á eftir þeim og voru alveg líklegir til að taka forystuna. Það var síðan hörku barátta beggja liða, hvorugu liðinu náðu neinu áhlaupi og fór svo að Valur hélt sínu fjögurra stiga forskoti eftir þrjá leikhluta, 70-66.

Síðasti leikhlutinn var alveg eins og allir hinir, mikil og heiðarleg barátta á báðum endum vallarins. KR byrjuðu hann þó betur og náðu að minnka muninn í eitt stig þegar fjórar mínútur voru eftir og leikurinn í algjörum járnum. KR komst síðan yfir í næstu sókn. Eftir svakalegan darraðadans í lokin endaði leikhutinn þannig að bæði lið skoruðu 84 stig, því þurfti að framlengja.

Húsið tók svo sannarlega við sér í framlengingunni, KR hlutinn í stúkunni hafði þó verið mun líflegri allan leikinn. Annars var framlengingin bara alveg eins og allur leikkurinn, hnífjafn. En Valsmönnum gekk ekkert að skora og KR skoraði fyrstu tvær körfurnar, þá kom Igor Maric og setti niður þrist og svo Kári í kjölfarið og skyndilega Valur komið yfir. Þrátt fyrir harða atlögu gestana náðu Valsmenn að halda þetta út og unnu 92-90 í frábærum körfuboltaleik.

Hjá Valsmönnum átti Kristófer frábæran leik, með 17 stig, 17fráköst og 8 stoðsendingar, Woods var stighæstur með 24 stig, flest eftir frábær mid-range skot. Þá var Kári með 21 stig. Hjá KR var Linards drjúgur með 26 stig, Tóti með 18 stig, þá var Rinalds með tvöfalda tvennu, 13 stig og 12 fráköst.

Næstu leikir þessara liða eru 12. mars, þegar Valsmenn heimsækja Njarðvík og KR fær Keflavík í heimsókn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -