HomeBónus deildinBónus deild karlaLykill: Dwayne Lautier-Ogunleye

Lykill: Dwayne Lautier-Ogunleye

Lykilleikmaður 19. umferðar Bónus deildar karla var leikmaður Njarðvíkur Dwayne Lautier-Ogunleye.

Dwayne bauð upp á sýningu í mikilvægum leik gegn Ármanni þar sem hann setti nýtt viðmið í deildinni í vetur með því að skora hvorki meira né minna en 48 stig. Þessi magnaða tölfræðilína var studd af einstakri skotnýtingu, en hann setti niður 17 af 27 skotum sínum utan af velli, sem gerir tæplega 63% skotnýtingu, þar af fóru 5 af 10 þriggja stiga skotum hans rétta leið. Hann var sömuleiðis öruggur á vítalínunni með 81% nýtingu og bætti við 6 stoðsendingum, 4 fráköstum og skilaði samtals 43 í framlagi á þeim 34 mínútum sem hann spilaði.

Lykilleikmenn Bónus deild karla

  1. umferð – Jordan Semple / Grindavík
  2. umferð – Khalil Shabazz / Grindavík
  3. umferð – Brandon Averette / Njarðvík
  4. umferð – Kári Jónsson / Valur
  5. umferð – Haukur Helgi Briem Pálsson / Álftanes
  6. umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
  7. umferð – Taiwo Badmus / Tindastóll
  8. umferð – Egor Koulechov / Keflavík
  9. umferð – Kristófer Acox / Valur
  10. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  11. umferð – Craig Edward Moller / Keflavík
  12. umferð – Seth Christian LeDay
  13. umferð – Tómas Orri Hjálmarsson / ÍR
  14. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík
  15. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  16. umferð – KJ Doucet / KR
  17. umferð – Luka Gasic / Stjarnan
  18. umferð – Darryl Morsell / ÍA
  19. umferð – Dwayne Lautier Ogunleye / Njarðvík
Fréttir
- Auglýsing -