HomeBónus deildinBónus deild karlaSvona er spáð að Bónus deild karla muni raðast upp í lokin

Svona er spáð að Bónus deild karla muni raðast upp í lokin

Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.

Með Máté í þessum síðasta þætti eru sá grindvíski Manni Vill og stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan, en í honum er meðal annars farið yfir sviðið í Bónus deild karla.

Meðal þess sem Run and Gun fer yfir hvernig þeir haldi að Bónus deild karla muni enda fyrir úrslitakeppnina. Aðeins eru fjórar umferðir til stefnu nú og raða þeir liðunum upp frá sætum 1 til 12 eftir hversu marga sigurleiki þeir halda að liðin nái í.

Nokkuð ljóst er að það verður Grindavík sem mun enda í efsta sæti deildarinnar, en þeir eru sem stendur sex stigum fyrir ofan næsta lið og því erfitt fyrir þá að klúðra deildarmeistaratitlinum. Þá er því spáð að ásamt þeim muni Stjarnan, Tindastóll og KR vera með heimavöll í úrslitakeppninni.

Sé farið í hinn enda töflunnar spá Run and Gun liðar því að það verði Álftanes og Njarðvík sem missa af úrslitakeppninni og að nýliðarnir, ÍA og Ármann, fari beint niður aftur í fyrstu deildina.

Fréttir
- Auglýsing -