HomeNeðri deildir1. deild karlaOrri setti sigurkörfuna á Meistaravöllum í kvöld ,,Átti að vera and one...

Orri setti sigurkörfuna á Meistaravöllum í kvöld ,,Átti að vera and one líka”

Það var boðið upp á alvöru spennutrylli á Meistaravöllum þegar KV tók á móti Hetti í 1. deild karla.

Leikurinn var hnífjafn og sveiflukenndur allt frá fyrstu mínútu, en þegar upp var staðið fögnuðu Vesturbæingar gríðarlega mikilvægum sigri, 95–94, eftir háspennuatriði í framlengingu.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Orra Hilmarsson eftir leik en hann skoraði sigurkörfu leiksins þegar rúmar 3 sekúndur voru eftir af framlengingunni. Orri er að upplagi úr KR, en skipti yfir til KV nú rétt fyrir lok leikmannagluggans.

Fréttir
- Auglýsing -