HomeBónus deildinBónus deild karla5 líklegir til að hreppa MVP bikarinn

5 líklegir til að hreppa MVP bikarinn

Aukasendingin fékk Strikerinn Árna Jó  í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, leikina gegn Litháen, Bónus deild karla, hvaða lið eigi erfiðustu leikina eftir, hverjir eru uppáhalds landsliðsmennirnir og margt, margt fleira.

Þá er einnig farið yfir hvaða leikmenn eru taldir líklegastir til þess að verða valdir leikmenn ársins að deildarkeppni lokinni í Bónus deild karla. Tekið er fram að hér er um að ræða besta íslenska leikmann tímabilsins og eru erlendir atvinnumenn deildarinnar því ekki gjaldgengir fyrir verðlaunin.

Efstur á lista þar og lang líklegastur er talinn Ægir Þór Steinarsson fyrirliði Stjörnunnar. Ægir Þór var valinn leikmaður ársins á síðasta tímabili er lið hans vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Ægir Þór og Stjörnunni hefur vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á yfirstandandi tímabil og hafa þeir unnið síðustu 10 leiki sína í deildinni.

Næstur á lista er leikmaður bikarmeistara KR Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Líkt og farið er yfir í upptökunni er talið ólíklegt að nokkur geri tilkall annar en Ægir Þór, en væri það einhver er Þórir Guðmundur talinn líklegastur. KR vann á dögunum bikarmeistaratitilinn (eftir sigur gegn Stjörnunni í úrslitaleik) og hefur Þórir Guðmundur verið þeirra besti leikmaður á tímabilinu, með einstaka tölfræði, 17 stig, 8 fráköst og 9 stoðsendingar að meðaltali í leik, en ekki sama sigurhlutfall og Ægir Þór og Stjarnan. Stjarnan sem stendur í 2. sæti deildarinnar á meðan KR er í 5. sætinu.

Aðrir sem komast á listann eru Ólafur Ólafsson úr Grindavík og leikmenn Vals Kristófer Acox og Kári Jónsson.

Hérna er upptakan á Spotify

Umræðuna um hvaða leikmenn eru líklegastir til að verða valdir bestir má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

5 líklegir til að fá atkvæði sem bestu leikmenn tímabilsins

  1. Ægir Þór Steinarsson / Stjarnan
  2. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  3. Ólafur Ólafsson / Grindavík
  4. Kári Jónsson / Valur
  5. Kristófer Acox / Valur
Fréttir
- Auglýsing -