HomeFréttirStrákarnir okkar mæta Litháum í Klaipeda kl. 16:30 í dag: Mikilvægt skref...

Strákarnir okkar mæta Litháum í Klaipeda kl. 16:30 í dag: Mikilvægt skref í átt að HM 2027

Eftir magnaðan eins stigs sigur gegn Litháen í Laugardalshöllinni síðastliðinn föstudag er íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik mætt á útivöll til að fylgja þeim árangri eftir. Leikurinn fer fram í Klaipeda í Litháen og hefst klukkan 16:30. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum enda getur íslenska liðið stigið risavaxið skref í átt að því að tryggja sig áfram í næsta hluta undankeppni HM 2027 með öðrum sigri í dag.

Breytingar á hópnum og nýjar áherslur

Þrátt fyrir frábæran sigur í síðasta leik hafa orðið tvær breytingar á leikmannahópi Íslands fyrir þetta erfiða útiverkefni. Tveir leikmenn úr Álftanesi, þeir Ragnar Nathanaelsson og Sigurður Pétursson, koma inn í hópinn. Þeir leysa af hólmi þá Hauk Helga Briem Pálsson, einnig úr Álftanesi, og Valsarann Kára Jónsson.

Hérna er heimasíða keppninnar

Langleiðina áfram með sigri

Leikurinn í kvöld er einn sá mikilvægasti í þessum hluta undankeppninnar. Eftir sigurinn í Höllinni ríkir líklega mikið sjálfstraust í íslenska hópnum, en leikmenn vita mætavel að Litháar munu mæta dýrvitlausir til leiks á sínum heimavelli til að hefna fyrir tapið síðast. egir færir.

Með sigri í dag myndi Ísland fara langleiðina með að tryggja sér sæti í næsta hluta undankeppninnar. Slíkur árangur væri stórt skref fyrir íslenskan körfubolta. Fyrir þá sem ekki eru á staðnum verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Fréttir
- Auglýsing -