HomeFréttirHérna er hægt að kjósa frammistöðu Elvars Más sem þá bestu á...

Hérna er hægt að kjósa frammistöðu Elvars Más sem þá bestu á þriðja leikdegi undankeppninnar

Ísland lagði Litháen eftir glæsilega endurkomu í Laugardalshöllinni í gær í þriðja leik sínum í undankeppni HM 2027.

Eftir leik gærdagsins er Ísland efst í sínum riðil með tvo sigra og eitt tap það sem af er keppni.

Hérna er heimasíða mótsins

Elvar Már Friðriksson var stórkostlegur fyrir Ísland í leik gærkvöldsins, skilaði 34 stigum í leiknum, þar á meðal síðustu átta stigum liðsins í endurkomunni og síðustu körfunni sem tryggði Íslandi eins stigs sigur um leið og flautan gall, 86-85.

Sú frammistaða hefur verið útnefnd ein af fimm bestu frá fyrsta leikdegi mótsins, en hérna er hægt að kjósa hana sem þá bestu.

Fréttir
- Auglýsing -