Það var mikil gleði í íþróttahúsi Hauka í gær þegar landsliðsmennirnir Tryggvi Snær Hlinason og Elvar Már Friðriksson heimsóttu Special Olympics hóp félagsins. Starfið hefur vaxið gríðarlega á þeim átta árum sem hópurinn hefur starfað; til að byrja með voru börnin aðeins þrjú en í dag æfa um 50 börn í hverri viku. Heimsókn landsliðsmannanna vakti mikla lukku og skein ánægjan úr hverju andliti á þessari skemmtilegu æfingu.
Í færslu KKÍ sem sjá má hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá heimsókn landsliðsmanna Íslands.





