Úrvalsdeildargoðsögnin Frank Alonzo Booker er látinn 61 árs að aldri.
Núverandi leikmaður Vals Frank Aron Booker sonur hans minnist hans á samfélagsmiðlum nú í morgun.
Frank eldri lék með Bowling Green háskólanum í Bandaríkjunum um miðjan níunda áratug síðustu aldar við góðan orðstýr og var svo valinn í nýliðavali NBA deildarinnar af New Jersey Nets árið 1987.
Ferill hans þar náði aldrei neinu flugi, en árið 1991 semur hann við ÍR og leikur með þeim eitt tímabil þar sem hann skilaði 43 stigum að meðaltali í leik í efstu deild. Þaðan fór hann til Vals þar sem hann var í þrjú tímabil og leiddi deildina í stigaskorun með þeim 1992 og 1994. Ferill hans á Íslandi endaði svo tímabilið 1994-1995 með Grindavík, en í heild skilaði hann að meðaltali 28 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum í leik á þessum fimm tímabilum og er af mörgum talinn einn af betri leikmönnum sem spilað hafa í úrvalsdeild karla.




