Íslenska karlalandsliðið í kringum mánaðarmótin leika heiman og heima gegn Litháen í undankeppni HM 2027.
Um er að ræða annan leikjaglugga keppninnar, en í fyrsta glugganum vann íslenska liðið Ítalíu úti og tapaði svo fyrir Bretlandi heima í Laugardalshöll. Leikið er heima 27. febrúar gegn Litháen heima í Laugardalshöll og þann 2. mars úti gegn sama liði í Klaipeda.
Nú í hádeginu tilkynnti sambandið hvaða 13 leikmenn það verða sem munu leika fyrir Íslands hönd í leikjunum tveimur. Einn nýliði er í annars nokkuð reynslumiklum hóp Íslands fyrir leikina tvo, Njarðvíkingurinn Veigar Páll Alexandersson. Veigar Páll hefur átt frábært tímabil fyrir Njarðvík í Bónus deildinni og mun að öllum líkindum leika sinn fyrsta leik fyrir A landslið Íslands gegn Litháen, en áður hafði hann verið hluti af öllum yngri landsliðum.
13 leikmanna hópur Íslands / félag / landsleikir:
Elvar Friðriksson – Anwil Wloclawek – 86 leikir
Haukur Helgi Pálsson – Álftanes – 84
Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan – 30
Jón Axel Guðmundsson – CB San Pablo Burgos – 47
Kári Jónsson – Valur – 45
Kristinn Pálsson – General Contractor Jesi – 47
Orri Gunnarsson – Stjarnan – 23
Ólafur Ólafsson – Grindavík – 52
Styrmir Snær Þrastarson – CB Zamora – 32
Tryggvi Snær Hlinason – Bilbao Basket – 81
Veigar Páll Alexandersson – Njarðvík – Nýliði
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR – 31
Ægir Þór Steinarsson – Stjarnan – 103




