Sjötti maðurinn kom saman og ræddi stöðuna í efstu tveimur deildum karla.
Til umræðu er síðasta og næsta umferð í Bónus deild karla, kraftröðun fyrir deildina og margt, margt fleira.
Þá fara stjórnendur þáttarins yfir hvaða fimm leikmenn Bónus deildar karla eru líklegastir til þess að vera með burner account til að taka þátt í umræðu á samfélagsmiðlum, en með því er átt við að þeir hafi útbúið nafnlausa reikninga til þess að geta tekið þátt í umræðu án þess að hægt væri að tengja þá við hana. Slíkt er að sjálfsögðu ekki algengt, en þó hafa einhverjir leikmenn úti í hinum stóra heimi líkt og Kevin Durant orðið uppvísir að hafa gert nákvæmlega það.
Hér fyrir neðan má sjá listann og nálgast má umræðuna í síðasta þætti af Sjötta manninum. Nauðsynlegt er að minna á að sjálfsögðu er þetta sett saman af stjórnendum Sjötta mannsins til þess að hafa gaman og ekki eru til neinar sönnur þess að þessir leikmenn séu í raun og veru með gervimenni að tala fyrir sig á samfélagsmiðlum.

Topp 5 líklegastir í Bónus deildinni til að vera með burner account
1. Nikola Miscovic / Álftanes
2. Hákon Örn Hjálmarsson / ÍR
3. Dedrick Basile / Tindastóll
4. Ilija Djokovic / ÍA
5. Giannis Agravanis / Stjarnan




