spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHvaða 5 þjálfarar eru taldir líklegir til að færa sig í sumar?

Hvaða 5 þjálfarar eru taldir líklegir til að færa sig í sumar?

Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, Bónus deild karla, hvaða þjálfarar eru líklegir til að yfirgefa lið sín í sumar, hvaða leikmannahópar eru dýrastir í deildinni, hvaða 12 leikmenn spila gegn Litháen og margt, margt fleira.

Þá er einnig farið yfir í upptökunni hvaða fimm þjálfarar eru líklegir til að hreyfa sig til eða frá félögum í sumar. Efstur á listanum er þjálfari Álftaness Hjalti Vilhjálmsson, sem tók við liðinu á miðju tímabili eftir að Kjartan Atli Kjartansson sagði starfi sínu lausu. Einnig eru á listanum Lárus Jónsson hjá Þór, Óskar Þorsteinsson og Jóhann Þór Ólafsson hjá Grindavík, sem allir eru taldir líklegir til þess að yfirgefa sín félaög í sumar.

Þá er fyrrum þjálfari Gnúpverja, Hamars og Hauka Máté Dalmay talinn líklegur til að taka við liði fyrir komandi tímabil, en hann hefur verið frá þjálfun allt yfirstandandi tímabil.

Hérna er upptakan á Spotify

Umræðuna má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Aukasendingin spáir því að Máté taki við einhverju liði í sumar

Fimm þjálfarar sem líklegir eru til að hreyfa sig í sumar

  1. Hjalti Þór Vilhjálmsson / Álftanes
  2. Óskar Þór Þorsteinsson / ÍA
  3. Jóhann Þór Ólafsson / Grindavík
  4. Lárus Jónsson / Þór
  5. Máté Dalmay / Án félags
Fréttir
- Auglýsing -