Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, Bónus deild karla, hvaða þjálfarar eru líklegir til að yfirgefa lið sín í sumar, hvaða leikmannahópar eru dýrastir í deildinni, hvaða 12 leikmenn spila gegn Litháen og margt, margt fleira.
Þá er einnig farið yfir í upptökunni hvaða fimm leikmönnum deildarinnar verður leiðinlegast að missa af í úrslitakeppninni. Efstur á lista þar er leikmaður Ármanns Bragi Guðmundsson. Bragi hefur átt frábært tímabil fyrir nýliðana og er einn stigahæsti leikmaður Bónus deildarinnar. Þá komast tveir leikmenn Njarðvíkur á listann, þeir Dominykas Milka og Veigar Páll Alexandersson, en á milli þeirra eru Styrmir Jónasson frá nýliðum ÍA og fyrirliði Þórs Emil Karel Einarsson.
Umræðuna má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar, en ásamt þeim fimm sem taldir eru upp hér er umræða um þónokkra aðra leikmenn sem væri gaman að sjá í úrslitakeppninni í vor, en eru ekki á leiðinni þangað.

Fimm leikmenn sem leiðinlegt er að missa af úrslitakeppni
- Bragi Guðmundsson / Ármann
- Dominykas Milka / Njarðvík
- Styrmir Jónasson / ÍA
- Emil Karel Einarsson / Þór
- Veigar Páll Alexandersson / Njarðvík




