spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHverjir eru fimm dýrustu leikmannahópar Bónus deildar karla?

Hverjir eru fimm dýrustu leikmannahópar Bónus deildar karla?

Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, Bónus deild karla, hvaða þjálfarar eru líklegir til að yfirgefa lið sín í sumar, hvaða leikmönnum er mest eftirsjá að þeir komist ekki í úrslitakeppni, hvaða 12 leikmenn spila gegn Litháen og margt, margt fleira.

Þá er einnig farið yfir í upptökunni hver talin séu fimm dýrustu lið Bónus deildar karla. Listann má sjá hér fyrir neðan, en það eru Íslandsmeistarar Stjörnunnar sem taldir eru vera með hæstan launakostnað frá mánuði til mánuðs í deildinni. Fast á hæla þeirra sækir topplið Grindavíkur sem hefur á að skipa sterkum leikmönnum í hverri stöðu. Í þriðja sætinu er svo Tindastóll, í því fjórða Valur og svo eru Álftnesingar taldir með fimmta dýrasta leikmannahóp deildarinnar.

Hérna er upptakan á Spotify

Umræðuna um dýrasta lið Bónus deildar karla má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Luka Gasic – Stjarnan

Fimm dýrustu lið Bónus deildar karla

  1. Stjarnan
  2. Grindavík
  3. Tindastóll
  4. Valur
  5. Álftanes
Fréttir
- Auglýsing -