spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaFyrrum NBA leikmaðurinn einni frá því að jafna 14 ára frammistöðu Íslendings

Fyrrum NBA leikmaðurinn einni frá því að jafna 14 ára frammistöðu Íslendings

Um helgina þreytti fyrrum NBA-leikmaðurinn Tony Wroten sína heimaleikjafrumraun fyrir BK Vejen í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Sem er ekki síst frá sögu færandi fyrir þær sakir að frammistaða hans í leiknum kom honum á lista methafafa deildarinnar í stoðsendingum.

Lið Tony tapaði leiknum, en honum tókst að senda 15 stoðsendingar í leiknum, sem setur frammistöðuna í fjórða sæti allra tíma í þeim flokk ásamt Skylar Bowlin og Marius Sørensen. Flestar gaf Marius Sørensen í leik með Svendborg Rabbits gegn BK Amager þann 22. janúar árið 2009, 25 stykki.

Adama Kasper

Næstur á lista yfir flestar stoðsendingar er fyrrum leikmaður Grindavíkur, KR og Ármanns Adama Darboe. Adama gaf 17 stoðsendingar í leik með Bakken Bears gegn liði Stevnsgade þann 13. febrúar 2018.

Arnar Freyr

Í þriðja sætinu er svo fyrrum leikmaður Keflavíkur, Grindavíkur og íslenska landsliðsins, núverandi aðstoðarþjálfari Keflavíkur, Arnar Freyr Jónsson, en hann gaf 16 stoðsendingar í leik með BC Aarhus gegn Falcon árið 2012.

Fréttir
- Auglýsing -