Stjarnan hefur samið við þá Steinar Rafn Rafnarsson og Daníel Geir Snorrason, en um er að ræða fyrstu samninga þessara efnilegu leikmanna.
Báðir eru þeir Steinar og Daníel 17 ára á þessu ári og hafa leikið upp alla yngri flokka Stjörnunnar og síðustu misseri einnig verið með meistaraflokki þeirra. Þá hafa þeir einnig leikið fyrir KFG og verið hlutar af yngri landsliðum Íslands.





