spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaAnnar franskur leikmaður til Íslandsmeistaranna

Annar franskur leikmaður til Íslandsmeistaranna

Haukar hafa samið við Catherine Mosengo Masa um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Bónus deild kvenna.

Catherine er 29 ára 193 cm franskur miðherji sem alla tíð hefur leikið í heimalandinu. Emil Barja þjálfari Hauka hafði þetta að segja: “Catia er það sem við höfum verið að leita að í nokkurn tíma og ég er mjög ánægður að hafa fengið hana til liðsins. Hún kemur með góða orku í liðið, er öflug í fráköstum og spilar góða vörn. Það er ekkert leyndarmál að við erum ekki mjög góðar í fráköstum og hún mun klárlega hjálpa okkur þar. Hún hefur komið með góða orku og góðan anda inn í liðið og mér sýnist að hún ætti að geta fallið vel að leik liðsins”.

Catherine er þá annar franskur leikmaður Íslandsmeistara Hauka, en fyrir var þar Amandine Toi.

Fréttir
- Auglýsing -