spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaFyrrum leikmaður Keflavíkur á leið til Íslands?

Fyrrum leikmaður Keflavíkur á leið til Íslands?

Íslenska karlalandsliðið mun í lok mánaðar leika heiman og heima gegn Litháen í undankeppni HM 2027.

Um er að ræða annan leikjaglugga keppninnar, en í fyrsta glugganum vann íslenska liðið Ítalíu úti og tapaði svo fyrir Bretlandi heima í Laugardalshöll.

Leikið er heima 27. febrúar gegn Litháen heima í Laugardalshöll og þann 2. mars úti gegn sama liði í Klaipeda.

Litháen tilkynnti 24 leikmanna hóp sinn á dögunum. Hann má sjá hér fyrir neðan, en úr honum verða svo valdir 12 leikmenn til að leika hvorn leik fyrir sig.

Líkt og sjá má á leikmannalista Litháen er um gífurlega sterkan hóp að ræða þar sem flestir þeirra leikmanna leika í sterkari deildum Evrópu. Helmingur þeirra er í heimalandinu Litháen, en svo dreifast hinir 12 á deildir í Tyrklandi, Spáni, Ítalíu og Póllandi.

Einn leikmaður þeirra Mindaugas Kacinas ætti að vera íslenskum aðdáendum þekktur, en hann lék með Keflavík tímabilið 2018-19. Síðan þá hefur hann leikið í sterkum deildum á Spáni og í Kanada, en er nú á mála hjá liði í Póllandi. Með Keflavík var hann einn af framlagshætti leikmönnum úrvalsdeildarinnar þar sem hann skilaði 16 stigum og 9 fráköstum að meðaltali í leik tímabilið 2018-19.

#NafnFélag
1Arnas VeličkaKlaipėdos „Neptūnas“
2Artūras GudaitisVilniaus „Rytas“
3Ąžuolas TubelisKauno „Žalgiris“
4Donatas TarolisKlaipėdos „Neptūnas“
5Dovydas GiedraitisKauno „Žalgiris“
6Edgaras UlanovasKauno „Žalgiris“
7Eimantas BendžiusUdinės APU (Ítalía)
8Gytis MasiulisVilniaus „Rytas“
9Ignas BrazdeikisKauno „Žalgiris“
10Ignas SargiūnasVilniaus „Rytas“
11Kristupas ŽemaitisManisos „Manisa“ (Tyrkland)
12Laurynas BeliauskasSasario „Dinamo“ (Ítalía)
13Laurynas BirutisKauno „Žalgiris“
14Mantas RubštavičiusKauno „Žalgiris“
15Marek BlaževičBursos „Tofaš“ (Tyrkland)
16Margiris NormantasBilbao „Surne Basket“ (Spánn)
17Martinas GebenŽironos „Basquet“ (Spánn)
18Martynas SajusIzmiro „Petkim Spor“ (Tyrkland)
19Matas JogėlaTrento „Dolomiti Energia“ (Ítalía)
20Mindaugas KačinasSopoto „Trefl“ (Pólland)
21Mindaugas SušinskasŽironos „Basquet“ (Spánn)
22Regimantas MiniotasPezaro „Victoria Libertas“ (Ítalía)
23Rokas GiedraitisTenerifės „La Laguna“ (Spánn)
24Vaidas KariniauskasŠiaulių „Šiauliai“
Fréttir
- Auglýsing -