spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaSeiglusigur Norðankvenna í Þorlákshöfn

Seiglusigur Norðankvenna í Þorlákshöfn

Hamar/Þór (12. sæti) tók í kvöld á móti Tindastól (8. sæti) í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn.

Bæði þessi lið komust í undanúrslit bikarsins vikuna á undan en féllu úr leik en áttu samt góðan leik og vilja bæði lið bæta fyrir það. Hamar/Þór er með 4 stig og þarf allar líflínur til að halda sér í deildinni. Þær hafa átt leik á móti öllum liðun deildarinnar en þurfa að hætta að eiga slæma kaflan sinn í þriðja leikhluta til að eiga von. Tindastóll er í 8 sæti sem er undir væntingum norðankvenna sem eru 8 stigum frá 6 sæti sem er sæti í finals.

Byrjunarlið

Hamar/Þór: Ana.C, Bergdís, Mariana, Jovana, Jadakiss

Tindastóll: Oceane, Roseline, Rannveig, Madison, Marta.

Um leik

Hamar/Þór leiddi eftir fyrri hálfleik 46-42.  Jafnt var á nánast allri tölfræði og sýndu heimastúlkur góð fyrirheit í vörninni og voru að tala vel saman. Það eina sem munaði að Tindastólsstúlkur voru komnar með töluvert meira af villum en Hamar/Þór sem er stundum merki um ákefð.

Jafnt var hjá liðunum í þriðja leikhluta og ljóst að Tindastóll var farin að leita meira í gegnum miðjuna og sérstaklega þegar Jovana vermdi tréverkið hjá H/Þ þá hreinlega löbbuðu gestirnir framhjá veikri vörn heimakvenna. Þriðji leikhluti var svo eign gestana sem byrjuðu á 8 stiga áhlaupi og komust yfir og þar með litu þær aldrei til baka.

Það hefur því miður verið svolítið saga tímabilsins hjá Hamar/Þór að kafli í fjórða leikhluta hefur orðið þeim að falli og var það staðan í þessum leik líka.

Ekkert tekið af Tindastól sem voru mjög flottar í þeim fjórða leiddar áfram af Mörtu sem var með 34 stig og 32 frl. Svo minnst sé á Roseline sem er að spila sinn annan leik með Tindastól og gaf 10 stoðsendingar og ber boltan vel upp völlin auk þess að hún getur líka skotið fyrir utan og átti móment þegar H/Þ minnkuðu leikinn niður í þrjú stig og voru líklegar til að koma til baka, þá drap hún það með því að setja þrist í bakið á heimakonum. Leikurinn endaði Hamar/Þór 79-87 Tindastóll

Hamar/Þór eru enn á botni deildarinnar með 4 stig á meðan Tindastóll er komið með 12 stig og eru að verða öruggar með sæti sitt í deildinni.

Hvað svo

Hamar/Þór fær KR í heimsókn 18. Febrúar á meðan Tindastólskonur fara í Laugardalinn og leika á móti hinu botnliði deildarinnar Ármann 17.febrúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -