spot_img
HomeBikarkeppniEinn leikur og sekt fyrir höggið

Einn leikur og sekt fyrir höggið

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ sendi í dag frá sér niðurstöðu í tveimur agamálum er henni barst úrlausna.

Bæði eru agamálin tengd meistaraflokki Stjörnunnar, en í því fyrra fær leikmaður þeirra Giannis Agravanis 40 þúsund króna sekt og einn leik í bann fyrir að kýla leikmann Keflavíkur Craig Moller í undanúrslitaviðureign liðanna í VÍS bikarkeppninni.

Þá fékk þjálfari þeirra Baldur Ragnarsson 20 þúsund króna sekt fyrir fjórar uppsafnaðar tæknivillur.

Agamál 36/2025–2026

Með vísan til ákvæða d-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal leikmaður Stjörnunnar, Giannis Agravanis, sæta sekt að fjárhæð 40.000 kr. auk eins leiks banns vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur og Stjörnunnar sem fram fór þann 3. febrúar 2026

Agamál 133/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Baldur Ragnarsson þjálfari Stjörnunnar, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Fréttir
- Auglýsing -