spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær frábær í eins stig sigri Evrópumeistara Bilbao

Tryggvi Snær frábær í eins stig sigri Evrópumeistara Bilbao

Tryggvi Snær Hlinason og Evrópumeistarar Bilbao eru enn taplausir í seinni hluta riðlakeppni FIBA Europe cup eftir sigur gegn PAOK frá Grikklandi í kvöld, 87-88.

Tryggvi lék rúmar 22 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 13 stigum, 7 fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og 3 vörðum skotum.

Bilbao eru öruggir í átta liða úrslit keppninnar sem leikin verða í mars, en ekki er ljóst hvaða liði þeir mæta þar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -