Nýliðar KR höfðu betur gegn nýkrýndum bikarmeisturum Keflavíkur í Bónus deild kvenna á Meistaravöllum í kvöld, 97-79.
Eftir leikinn er KR í efsta sæti deildarinnar ásamt Haukum með 24 stig, en í neðra sætinu sökum innbyrðisviðureignar gegn þeim. Keflavík aftur á móti er enn í 6. sætinu með 18 stig og vegna tapsins í kvöld munu þær þurfa sætta sig við að vera í neðri hluta deildarinnar er hún skiptist eftir eina umferð í viðbót.
Karfan spjallaði við Kötlu Rún Garðarsdóttur leikmann Keflavíkur eftir leik á Meistaravöllum.




