spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaNýliðarnir lögðu nýkrýnda bikarmeistara með 18 stigum á Meistaravöllum

Nýliðarnir lögðu nýkrýnda bikarmeistara með 18 stigum á Meistaravöllum

Nýliðar KR höfðu betur gegn nýkrýndum bikarmeisturum Keflavíkur í Bónus deild kvenna á Meistaravöllum í kvöld, 97-79.

Eftir leikinn er KR í efsta sæti deildarinnar ásamt Haukum með 24 stig, en í neðra sætinu sökum innbyrðisviðureignar gegn þeim. Keflavík aftur á móti er enn í 6. sætinu með 18 stig og vegna tapsins í kvöld munu þær þurfa sætta sig við að vera í neðri hluta deildarinnar er hún skiptist eftir eina umferð í viðbót.

Leikar voru nokkuð jafnir á upphafsmínútunum þar sem liðin skiptust á snöggum áhlaupum, en að fyrsta fjórðung loknum leiddu heimakonur með minnsta mun mögulegum. Annar leikhlutinn var svo meira en minna eign Keflavíkur. Þær ná að herða vörnina og fá nokkur skot til að detta fyrir sig sóknarlega. Keflavík leiðir með 10 stigum er í hálfleik er komið, 40-50.

Það var svo eins og allt annað KR lið mætti til leiks í seinni hálfleikinn. Eru snöggar að vinna niður forskot gestana úr Keflavík og eru sjálfar komnar yfir þegar þriðji leikhluti er rúmlega hálfnaður. Sú spilamennska heldur svo áfram út þann þriðja og inn í lokaleikhlutann. Halda forskoti sínu í kringum 10 stigin þangað til á lokamínútunum þegar þær nýta sér örþrifaleik bikarmeistarana til að bæta enn í sarpinn og vinna að lokum með 18 stigum, 97-79.

Molly Kaiser átti gjörsamlega frábæran leik fyrir KR í kvöld og skilaði 34 stigum, en næst henni í liði heimakvenna var Eve Braslis með 23 stig.

Fyrir Keflavík var Sara Rún Hinriksdóttir með 18 stig og systir hennar Bríet Sif bætti við 16 stigum.

Tölfræði leiks

KR: Molly Kaiser 34, Eve Braslis 23/12 fráköst, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 17/8 fráköst/7 stoðsendingar, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 11/9 fráköst, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 7/11 fráköst, Anna María Magnúsdóttir 5, Perla Jóhannsdóttir 0, Helena Haraldsdottir 0, Arndís Rut Matthíasdóttir 0, Kristrún Edda Kjartansdóttir 0, Kaja Gunnarsdóttir 0, Klara Líf Pálsdottir 0.


Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 18/4 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 16/6 fráköst, Keishana Washington 13/6 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 10/6 fráköst/5 stoðsendingar, Angelina Turmel 6, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 5, Katla Rún Garðarsdóttir 4, Anna Ingunn Svansdóttir 3, Agnes María Svansdóttir 2, Sofie Tryggedsson Preetzmann 1/4 fráköst, Eva Kristín Karlsdóttir 1, María Jónsdóttir 0.

Fréttir
- Auglýsing -