spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaÍslandsmeistararnir í efsta sætið eftir þriggja stiga sigur gegn Stjörnunni

Íslandsmeistararnir í efsta sætið eftir þriggja stiga sigur gegn Stjörnunni

Haukar lögðu granna sína Stjörnuna í Garðabæ í kvöld í Bónus deild kvenna, 71-74.

Eftir leikinn eru Haukar í efsta sæti deildarinnar með 24 stig líkt og KR á meðan Stjarnan er í 7. sætinu með 16 stig.

Heimakonur í Stjörnunni hófu leik kvöldsins betur og leiddu með 6 stigum að fyrsta leikhluta loknum. Mest voru þær 16 stigum yfir í fyrri hálfleiknum, en þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var munurinn 11 stig, 40-29.

Stjarnan er svo áfram skrefinu á undan í upphafi seinni hálfleiksins. Eru yfir allan þriðja fjórðunginn og enn 10 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. Í þeim fjórða sýndu Íslandsmeistarar Hauka loks klærnar. Vinna niður muninn hægt og rólega, og ná svo með snöggu áhlaupi á lokamínútunum að hrifsa forystuna og vinna leikinn með stórum körfum frá Tinnu Guðrúnu og Krystal Freeman, 71-74.

Stigahæstar fyrir Stjörnuna í kvöld voru Ruth Sherrill með 15 stig og Stina Almqvist og Eva Wium Elíasdóttir með 12 stig hvor.

Fyrir Hauka var Amandine Toi stigahæst með 19 stig og Krystal Freeman bætti við 15 stigum.

Tölfræði leiks

Stjarnan: Ruth Helena Sherrill 15/10 fráköst, Stina Josefine Almqvist 12/6 fráköst, Eva Wium Elíasdóttir 12/7 fráköst/6 stoðsendingar, Berglind Katla Hlynsdóttir 9/6 fráköst/3 varin skot, Diljá Ögn Lárusdóttir 9/8 fráköst, Bára Björk Óladóttir 5, Fanney María Freysdóttir 5, Elísabet Ólafsdóttir 4/4 fráköst, Heiðrún Björg Hlynsdóttir 0, Ingibjörg María Atladóttir 0, Sigrún Sól Brjánsdóttir 0, Eva Ingibjörg Óladóttir 0.


Haukar: Amandine Justine Toi 19/4 fráköst/7 stoðsendingar, Krystal-Jade Freeman 15/9 fráköst/6 varin skot, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 13, Sólrún Inga Gísladóttir 9, Sigrún Björg Ólafsdóttir 8/6 stolnir, Lovísa Björt Henningsdóttir 4, Catherine Mosengo Masa 2/8 fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 2/9 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 2/5 fráköst, Ísabella Fjeldsted Magnúsdóttir 0, Ásta Margrét Jóhannesdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0.

Fréttir
- Auglýsing -