VÍS bikarvikunni er nú lokið í Smáranum í Kópavogi, en þar fóru fram fjölmargir undanúrslita- og úrslitaleikir í VÍS bikarkeppninni frá þriðjudegi síðasta.
Hér má sjá umfjöllun um alla leiki VÍS bikarvikunnar.
Karfan tók á tal framkvæmdastjóra KKÍ Hannes Jónsson og ræddi við hann um skipulag vikunnar, staðsetninguna í Smáranum og margt fleira.
Varðandi staðsetningu VÍS bikarvikunnar sagði Hannes ákvörðun varðandi að nota Smárann hafa verið tekna eftir að ljóst var að ekki gætu allir úrslitaleikirnir farið fram í Laugardalshöllinni þar sem hún er notuð af Reykjavíkurborg semn æfingaaðstaða fyrir félög í Laugardalnum.
Enn frekar sagði Hannes það hafa gefist vel að hafa leikina í Smáranum, en ásamt því að hafa þar reynslumikla aðila til þess að halda utan um skipulag vikunnar gæfist þar einnig nokkuð sem aldrei hafi verið í boði fyrir lið þegar bikarvikan var í Laugardalshöll og það er að lið ættu þess kost á að æfa fyrir leiki á sama gólfi og þau svo keppa úrslitaleikina á.
Viðtalið við Hannes má nálgast hér fyrir neðan.




