Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum á morgun laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.
Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Ásta Júlía Grímsdóttir miðherji íslenska landsliðsins og Vals í Bónus deildinni spáir því að Stjarnan og Keflavík hampi titlunum á morgun.
Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar
Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni
Hvernig fer leikurinn? Stjarnan vinnur með sjö
Hvernig á hann eftir að spilast?
Ég held að þetta verði jafn leikur en Stjarnan verður skrefi á undan allan tíman.
Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík
Hvernig fer leikurinn? Keflavík vinnur með tveimur
Hvernig á hann eftir að spilast?
Þetta eru mjög ólík lið. Keflavík á eftir að hlaupa á meðan Grindavík mun leita mikið inn í. Liðin munu skiptast á að gera áhlaup en svo mun Keflavík taka þetta á endanum.




