Stjarnan varð í kvöld VÍS bikarmeistari í 12. flokki karla eftir sigur á Selfossi í úrslitaleik, 109-91.
Titillinn var sá annar sem félagið vann þennan fyrsta úrslitadag yngri flokka, en fyrr í kvöld vann Stjarnan VÍS bikarmeistaratitilinn í 10. flokki stúlkna með sigri gegn KR í úrslitaleik.
Karfan spjallaði við Jakob Kára Leifsson leikmann Stjörnunnar eftir að hann tók við verðlaunum sem besti leikmaður úrslitaleiksins. Jakob Kári lék 34 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 19 stigum, 10 fráköstum, 16 stoðsendingum, 6 stolnum boltum og vörðu skoti.




