Stjarnan varð í kvöld VÍS bikarmeistari í 12. flokki karla eftir sigur á Selfossi í úrslitaleik, 109-91.
Titillinn var sá annar sem félagið vann þennan fyrsta úrslitadag yngri flokka, en fyrr í kvöld vann Stjarnan VÍS bikarmeistaratitilinn í 10. flokki stúlkna með sigri gegn KR í úrslitaleik.
Fyrir leik
Á leið sinni í úrslitaleikinn lagði Stjarnan lið Breiðabliks með 7 stigum í Garðabæ í undanúrslitum á meðan Selfoss vann sér sæti í úrslitunum með 15 stiga sigri gegn Keflavík.
Það sem af er tímabili hefur Stjarnan verið besta lið 12. flokks karla. Unnið 12 leiki af 13 á meðan Selfoss sitja sæti neðar í 2. sætinu með 9 sigra í 11 leikjum.
Á tímabilinu hafa liðin leikið tvisvar áður og hefur Stjarnan haft sigur í bæði skipti. Fyrri leikinn naumlega þó, með einu stigi í Garðabæ í lok september og síðan aftur með 11 stigum á Selfossi í byrjun desember.


Gangur leiks
Leikurinn fer nokkuð fjörlega af stað og ljóst er á báðum liðum að þau ætluðu ekki að láta tækifærið renna frá sér á fyrstu mínútum leiksins. Stjarnan þó heilt yfir betri aðilinn á upphafsmínútunum, 28-18 eftir fyrsta fjórðung, þar sem sjö leikmenn Stjörnunnar voru komnir á blað í stigaskorun.
Sefyssingar gera helvíti vel að halda leiknum áhugaverðum undir lok hálfleiksins. Skera forskot Stjörnunnar niður í 2 stig í öðrum leikhlutanum, en mikið til var það vasklegri framgöngu Fjölnis Morthens að þakka að þeir héngu í leiknum. Stjörnudrengir ná þó aftur að setja fótinn á bensínið og keyra muninn upp í 15 stig fyrir lok hálfleiksins, 57-42.
Stigahæstir Stjörnumanna í fyrri hálfleiknum voru Jakob Kári með 14 og Björn Skúli 13 stig. Fyrir Selfoss var stigahæstur Alex með 11 og Fjölnir með 10 stig.
Stjarnan kemur sér í enn þægilegri stöðu með því að opna seinni hálfleikinn á 9-0 áhlaupi. Þessu svarar Selfoss ágætlega, en þeir ná lítið að vinna niður forskotið. Þrátt fyrir að gera vel nær Stjarnan að halda leiknum á sínum hraða og nýta sér þann mun sem er á dýpt liðanna tveggja sér til ábata. Forskot Stjörnunnar 20 stig fyrir þann fjórða, 85-65.
Áfram reynir Selfoss að komast aftur inn í leikinn í byrjun lokaleikhlutans. Á fyrstu mínútum fjórðungsins ná þeir að komast 14 stigum frá Stjörnunni, 91-77. Nær komast þeir þó ekki þrátt fyrir að leggja gjörsamlega allt í sölurnar fram á síðustu sekúndur leiksins. Stjarnan vinnur að lokum nokkuð sterkan sigur, 109-91.

Atkvæðamestir
Jakob Kári Leifsson var bestur í liði Stjörnunnar í dag með 19 stig, 10 fráköst, 16 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Honum næstur var Atli Hrafn Hjartarson með 25 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar.
Í liði Selfoss var Pétur Hartmann Jóhannsson atkvæðamestur með 19 stig, 5 fráköst og 4 stolna bolta. Þá bætti Alex Rúnarsson við 17 stigum og 4 fráköstum.




