Stjarnan varð í kvöld bikarmeistari í 10. flokki stúlkna eftir öruggan sigur gegn KR í úrslitaleik, 58-127.
Leikurinn var sá fyrsti þessa vikuna af VÍS bikarúrslitaleikjum yngri flokka, en nú á eftir leikur Stjarnan/KFG við Selfoss í öðrum úrslitaleik í 12. flokki karla.
Karfan spjallaði við Berlindi Kötlu Hlynsdóttur leikmann Stjörnunnar eftir verðlaunaafhendingu. Berglind var valin besti leikmaður leiksins, en hún skilaði 36 stigum, 5 fráköstum, 8 stoðsendingum, 13 stolnum boltum og 3 vörðum skotum á rúmum 25 mínútum spiluðum í leiknum.




