spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaNiðurstaða agamála - Stjarnan fullmannaðir á laugardaginn og 210 þúsund krónur í...

Niðurstaða agamála – Stjarnan fullmannaðir á laugardaginn og 210 þúsund krónur í sektir

Aga- og úrskurðanefnd hefur ályktað í sjö málum sem henni bárust til úrlausna.

Líkt og verið hefur þetta tímabilið er um mikið af sektum að ræða og er enginn leikmaður eða þjálfari settur í bann.

Tvö af þeim málum sem ályktað er í hafa að gera með leikmenn Stjörnunnar, en þeir Giannis Agravanis og Seth LeDay sleppa báðir við bann í bikarúrslitaleik laugardagsins.

Agamál 35/2025-2026

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ricardo González, þjálfari Þór Akureyri, 40.000 króna sektar vegna háttsemi sinnar í leik Þór Akureyri gegn Haukum, sem fram fór þann 30 janúar 2026.

Agamál 127/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Ingvi Þór Guðmundsson leikmaður Ármanns, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Agamál 128/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Steinar Kalda þjálfari Ármanns, sæta 50 þúsund króna sekt vegna 8 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Agamál 129/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Pétur Már Sigurðsson þjálfari Skallagríms, sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Agamál 130/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Ricardo Gonzalez þjálfari Þórs Ak., sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Agamál 131/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Seth Le Day leikmaður Stjörnunnar, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Agamál 132/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Giannis Agravanis leikmaður Stjörnunnar, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 2 tæknivilla og 1 brottrekstrarvillu sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Fréttir
- Auglýsing -