KR tryggði sig í úrslit VÍS bikarkeppninnar í kvöld með sigri gegn Tindastóli í undanúrslitum, 85-87.
KR mun því mæta Stjörnunni komandi laugardag í úrslitaleik, en Stjarnan lagði Keflavík í fyrri leik kvöldsins í hinni undanúrslitaviðureigninni.
Karfan spjallaði við Þóri Guðmund Þorbjarnarson leikmann KR eftir að hann setti sigurkörfuna fyrir sína menn í Smáranum.




