spot_img
HomeBikarkeppniKR í úrslit annað árið í röð eftir sigurkörfu Þóris Guðmundar

KR í úrslit annað árið í röð eftir sigurkörfu Þóris Guðmundar

KR tryggði sig í úrslit VÍS bikarkeppninnar í kvöld með sigri gegn Tindastóli í undanúrslitum, 85-87.

KR mun því mæta Stjörnunni komandi laugardag í úrslitaleik, en Stjarnan lagði Keflavík í fyrri leik kvöldsins í hinni undanúrslitaviðureigninni.

Fyrir leik 

Vel mætt og góð stemning er í húsinu

Tindastólsmenn eru fyrir leikinn taldir sigurstranglegri en hafa engu að síður átt misjöfnu gengi að fagna upp á síðkastið og mikið væst um þá. Þeir kynna til leiks nýjan finnskan leikmann Daniel Dolenc sem kom í stað Ivan Gavrilovic.

Eins og hjá Tindastól hefur verið mikil stemning fyrir bikarnum, meðal annars voru gerðir bolir með áletrun um hverjir hafa unnið bikarinn oftast sem er að sjálfsögðu KR.

Þeir hafa líka bætt nýjum leikmanni í sinn hóp sem er Rinalds Malmabis 205 cm framherji.

Hvernig sem gengið hefur í deildinni skiptir það engu máli hérna í kvöld því það er bara einn leikur vinna eða fara heim. Og það lið sem kemst áfram mætir Stjörnunni á laugardaginn.

Byrjunarlið

Tindastóll: Basile, Badmus, S.Arnar, Adomas, Júlíus.

KR: Þórir, Jamar, Linards, Toms, Rinalds.

Fyrsti leikhluti bar þess svolítið merki að kaldur sviti væri á höndum beggja liða. Nýtingin ekki góð þar sem Tindastóll var 5 af 22 í skotum og þar af 1 af 8 í þriggja. Stólar svolítið að reyna að forca hlutina og ólíkir sjálfum sér meðan KR er skrefi á undan. Baráttan er oft mæld í villum og fráköstum og eru Stólar komnir með eina villu og 10 fráköst meðan KR er með 3 og 15 fráköst. Hjá KR lítur Rinalds vel út í þessum fyrsta leikhluta.

KR ingar eru að halda mönnum betur fyrir framan sig og að skipta vel á skrínum í vörninni á meðan Stólar eru svolítið að gleyma sér í vörninni. 

KR var virtist vera með leikin í hendi sér þegar loksins Arnar tók af skarið stal bolta og gaf stoðsendingu sem virtist ná að kveikja smá í Stólum sem náðu að minnka muninn fyrir lok fyrri hálfleiks. Einhvað er off hjá Tindastól kannski er það góð vörn KR en tölfræðin gapir á mann þar sem Stólar eru með 14 skottilraunum meira en KR en jafn mörgum hitt eða Stólar 35%-51% KR 

Hálfleikstölur Tindastóll 46-50 KR

Ekki skánaði það hjá Tindastól þegar þeirra besti maður Drungilas fer útaf óvígur eftir samstuð, því það eru ekki aðrir tengdir í liði Tindastóls.hann situr engu að síður bara 2 mínútur og kemur sem betur fer fyrir Tindastól aftur inn á. En meðan eru KR komnir með 10 stiga forskot á tímabili í fjórða leikhluta. 

Tindastóll nær með mikilli stemningu að minnka muninn niður í eitt stig fyrir lok þriðja leikhluta. Tindastóll 71-72 KR

KR heldur áfram að spila frábæra vörn og sjá Tindastólsmenn ekki körfuna auðveldlega í sókninni. En KR er aftur komnir með yfirhöndina og virðist Tindastólsmönnum fyrirmunað að komast yfir í þessum leik.

Ekki fyrr en loks þegar 3:39 lifa af fjórða að þeir komast í 81-79 og grettismenn tryllast í stúkunni. 

Alvöru spenna undir lok leiksins Kenneth villar út og Stólarnir jafna þegar 10 sekúndur eru eftir og leikhlé. KR kemst 2 stigum yfir með körfu frá Þóri Guðmundiþegar 3 sek eru eftir og leikhlé  og Stólar taka boltan inn en Geeks stígur út af KR bolti. 

KR er komið í úrslit annað árið í röð og mætir Stjörnunni á laugardaginn. 

Þökkum Tindastól fyrir.

Atkvæðamestir

Tindastóll: Drungilas var með mesta framlag 26 og 21 stig 12 frk. Næstur var Badmus 21 framlag 22 stig og 12 frk

KR: King Þórir var með 22 stig 25 frl og Linards 19 stig og 24 frl.

Næsti leikur er á laugardaginn kl 15:00 KR – Stjarnan.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -