Stjarnan lagði Keflavík í kvöld í undanúrslitum VÍS bikarkeppni karla. Stjarnan mun því leika til úrslita á laugardag gegn annaðhvort Tindastóli eða KR.
Fyrir leik
Á leið sinni í undanúrslitin fóru bæði Keflavík og Stjarnan í gegnum sterka andstæðinga. Stjarnan lagði topplið Grindavíkur og Keflavík ríkjandi bikarmeistara Vals í átta liða úrslitunum.
Þrátt fyrir að Stjarnan hafi unnið aðeins einn Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins hafa þeir verið duglegir að sanka að sér bikarmeistaratitlum. Hafa unnið alls sex á meðan Keflavík er aðeins einum titil fyrir ofan þá í töflunni með 7 bikarmeistaratitla.
Ekki er langt síðan þessi lið hömpuðu síðasta bikarmeistaratitil. Keflavík vann fyrir tveimur árum, 2024 og Stjarnan tvö ár í röð, 2019 og síðast 2020.
Gangur leiks
Varnarelega mætir Stjarna gífurlega sterk til leiks. Ná að loka á Keflavík að mestu leyti í fyrsta fjórðungnum, fyrir utan þrista sem halda leiknum jöfnum. Munurinn þrjú stig að fyrsta loknum, 24-27 fyrir Stjörnuna, þar sem leikmaður þeirra Seth LeDay fór mikinn með 10 stigum.
Stjarnan sekkur tönnum sínum aðeins meira í leikinn í upphafi annars fjórðungs og nær að búa sér til 9 stiga forystu. Því svarar Keflavík ágætlega og munar þar miklu um innomu fyrirliða þeirra Halldórs Garðars Hermannssonar, sem setur þrjá þrista í fyrri hálfleiknum, en Stjarnan er þó 2 stigum yfir þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 45-47.
Bæði lið mættu nokkuð einbeitt til leiks í seinni hálfleikinn. Pínulítið eins og leikurinn væri í boði fyrir bæði lið í þeim þriðja, en hvorugu liðinu tókst þó að taka yfir. Keflvíkingar lengst af skrefinu á undan í fjórðungnum, en að honum loknum er staðan þó jöfn, 74-74.
Stjarnan nær að læsa varnarlega í upphafi þess fjórða. Hægt og rólega ná þeir svo nokkurra stiga forystu og eru 4 stigum yfir þegar 4 mínútur eru til leiksloka, 85-89. Leikar eru þó jafnir inn í brakmínútur leiksins, 91-91 þegar um þrjár eru eftir. Keflvíkingar þó komnir í eilítið bras með bakvarðastöður sína, þar sem Hilmar Pétursson hafði snúið sig í leikhlutanum og þá eyddi Remy Martin mestum hluta fjórðungsins inni í klefa eða á bekknum vegna auðsjáanlegra meiðsla. Þeir börðust þó hetjulega þessar síðustu mínútur leiksins, en með stórum körfum frá Giannis Agravanis og Ægi Þór Steinarssyni nær Stjarnan að vera skrefinu á undan. Það var ekki nema þristur frá Egor Koulechov sem tryggir Keflavík framlengingu, 95-95.
Stjarnan er svo sterkari aðilinn í framlengingunni. Ná að vera nokkrum stigum á undan allan tímann. Keflavík er þó ekki langt undan. Hilmar Smári Henningsson setur risastóran þrist þegar rúm mínúta er eftir til þess að koma Stjörnunni 5 yfir, 102-107 og var tilfinningin þá að þetta væri búið, sem og það var. Stjarnan vinnur að lokum 107-110.
Kjarninn
Djöfull sem Stjarnan lét finna fyrir sér í dag. Bæði var liðið á gólfinu hart í horn að taka og þá var stuðningsmannasveit þeirra til fyrirmyndar allan leikinn, sköpuðu gríðarlega stemningu (miðað við 17:15 á þriðjudegi) Þessu mætti keflvíska liðið af stakri prýði í leiknum og hefði ekki verið fyrir afföll í leikmannahópi þeirra þegar leið á leikinn er aldrei að vita hvort það væru ekki þeir sem væru á leiðinni í úrslitaleikinn á laugardaginn. Skulum ekki taka það af Stjörnunni samt, börðust fyrir þessum og áttu að lokum skilið að fara í úrslitaleikinn.
Stigahæstir
Remy Martin var stigahæstur fyrir Keflavík í dag með 25 stig þrátt fyrir að spila aðeins tæpar 27 mínútur. Fyrir Stjörnuna var Seth LeDay stigahæstur með 23 stig, en hann líkt og Remy spilaði lítið, aðeins rúmar 26 mínútur.
Hvað svo?
Úrslitaleikur á laugardaginn kl. 15:00 í Smáranum. Þar mun sigurvegari kvöldsins mæta sigurvegara leiks KR og Tindastóls sem fram fer í kvöld.




