spot_img
HomeBikarkeppni5 eftirminnilegustu úrslitaleikir bikarkeppninnar

5 eftirminnilegustu úrslitaleikir bikarkeppninnar

Aukasendingin fékk fjölmiðlamanninn Árna Jó í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, VÍS bikarkeppnina, orðið á götunni og og margt fleira.

VÍS bikarvikan fær ansi mikla athygli í Aukasendingunni, en í henni eru 13 undanúrslita- og úrslitaleikir á dagskrá. Veislan rúllar af stað í kvöld með undanúrslitum meistaraflokks karla. Þar mun Keflavík mæta Stjörnunni kl. 17:15 í fyrri leiknum og í þeim seinni eigast við sigursælasta lið keppninnar frá upphafi, KR, og Tindastóll kl. 20:00.

Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar

Við tilefnið setti Aukasendingin saman lista eftirminnilegustu úrslitaleikja bikarsins frá upphafi. Efstur á lista er sigur Njarðvíkur í keppninni 1999. Þá vann Njarðvík lið Keflavíkur á ævintýranlegan hátt eftir að hafa verið 9 stigum undir þegar um ein og hálf mínúta voru til leiksloka. Endurkoma Njarðvíkur á lokasekúndum leiksins hafði allt. Þar með talinn vafasaman ekki-dóm á skref Hermanns Haukssonar er hann setti þrist.

Annað sætið á listanum er svo úrslitaleikur Hauka gegn ÍA árið 1996. Haukar unnu örugglega, en ljósin í Laugardalshöllinni biluðu og seinka þurfti leiknum um 35 mínútur. Sá leiðinlegasti bikarúrslitaleikur sögunnar fyrir þær og fleiri sakir samkvæmt stórgóðri grein í DV eftir leik.

Hérna er Aukasendingin á Spotify

Umræðuna um eftirminnilegustu leikina er hægt að nálgast í síðustu Aukasendingu hér fyrir ofan, sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Eftirminnilegustu úrslitaleikir bikarsögunnar

1. 1999 Njarðvík 102:96 Keflavik

2. 1996 Haukar 85:58 ÍA

3. 2009 Stjarnan 78:76 KR

4. 1996 Keflavik 69:40 Njarðvík

5. 1993 Keflavík 115:76 Snæfell

Næstir á listann:

2000 Grindavík 59:55 KR

1994 Keflavík100:97 Njarðvík

Fréttir
- Auglýsing -