Þrír leikir fara fram í fyrstu deild karla í kvöld.
Skallagrímur tekur á móti Hamri í Borgarnesi, Haukar fá Selfoss í heimsókn í Ólafssal og í Dalhúsum mæta heimamenn í Fjölni liði Sindra.
Þá er einn leikur á dagskrá fyrstu deildar kvenna.
Þar tekur Snæfell á móti liði Selfoss í Stykkishólmi.
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla
Skallagrímur Hamar – kl. 19:15
Haukar Selfoss – kl. 19:15
Fjölnir Sindri – kl. 19:15
Fyrsta deild kvenna
Snæfell Selfoss – kl. 19:15



