Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Murcia í dag í ACB deildinni á Spáni, 96-82.
Tryggvi lék tæpar 16 mínútur í leiknum og var með 4 stig, 5 fráköst og 2 stoðsendingar.
Með sigrinum klifra Tryggvi og félagar upp töflu spænsku deildarinnar, en þeir eru nú í 9. sæti hennar með 7 sigra.




