Stjarnan hefur samið við landsliðsmanninn Hilmar Smára Henningsson fyrir yfirstandandi átök í Bónus deild karla. Staðfestir félagið þetta með tilkynningu rétt í þessu.
Hilmar kemur til Stjörnunnar frá Jonava í Litháen þar sem hann lék á fyrri hluta þessa tímabils. Þaðan fór hann frá Stjörnunni eftir að hafa verið lykilmaður í fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins síðasta vor.
Þá hefur Hilmar einnig verið hluti af íslenska landsliðinu á síðustu árum og var hann með liðinu á lokamóti EuroBasket 2025 nú í haust.





