Ármann hafði betur gegn Hamar/Þór í Laugardalshöllinni í kvöld í botnslag 13. umferðar Bónus deildar kvenna, 71-67.
Eftir leikinn fer Ármann uppfyrir Hamar/Þór í töflunni, en þær eru nú í 9. sætinu með 4 stig á meðan Hamar/Þór situr í 10. sætinu með 2 stig.
Þrátt fyrir að litlu hafi munað á liðunum í lok leiks í kvöld má segja að heimakonur í Ármann hafi verið í bílstjórasætinu lengst af. Leiða með 2 stigum eftir fyrsta fjórðung og 11 stigum í hálfleik.
Hamar/Þór gerir þó vel að koma til baka í þriðja leikhlutanum eftir að hafa mest verið undir 13 stigum fyrir lok fyrri hálfleiksins. Ná hægt og bítandi að vinna niður forskot heimakvenna og komast loks yfir hjallann og jafna leikinn í upphafi þess fjórða.
Þá nær Ármann að stíga aftur á bensíngjöfina og skapa sér smá forystu. Sem naum er þó fram á lokamínúturnar, en til þess að tryggja sér sigurinn á lokamínútunum eru það Kylie Savannah og Jónína Þórdís sem setja stórar körfur fyrir þær á sama tíma og vörn þeirra heldur. Niðurstaðan að lokum mikilvægur sigur Ármanns, 71-67, sem færist með stigunum tveimur frá neðsta sæti deildarinnar.
Stigahæstar fyrir Ármann í leiknum voru Kylie Savannah Kornegay-Lucas með 22 stig og Ragnheiður Björk Einarsdóttir með 17 stig.
Fyrir Hamar/Þór var Ana Clara Paz með 20 stig og Jadakiss Guinn bætti við 19 stigum.
Ármann: Kylie Savannah Kornegay-Lucas 22/10 fráköst/7 stoðsendingar, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 17, Jónína Þórdís Karlsdóttir 11/7 fráköst/5 stoðsendingar, Dzana Crnac 11/5 fráköst, Nabaweeyah Ayomide McGill 10/14 fráköst/3 varin skot, Þóra Birna Ingvarsdóttir 0, Auður Hreinsdóttir 0, Rakel Sif Grétarsdóttir 0, Aníka Linda Hjálmarsdóttir 0, Cirkeline Sofie Mehrenst Rimdal 0, Sigríður Ása Ágústsdóttir 0, Brynja Benediktsdóttir 0.
Hamar/Þór: Ana Clara Paz 20, Jadakiss Nashi Guinn 19/5 fráköst, Mariana Duran 17/12 fráköst, Jovana Markovic 5/4 fráköst, Matilda Sóldís Svan Hjördísardóttir 3, Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 3, Dagrún Inga Jónsdóttir 0, Guðrún Anna Magnúsdóttir 0, Sólveig Grétarsdóttir 0, Andrea Ösp Gunnsteinsdóttir 0, Jara Björg Gilbertsdóttir 0, Bergdís Anna Magnúsdóttir 0.





