spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaSterkur sigur Grindavíkur í Garðabæ

Sterkur sigur Grindavíkur í Garðabæ

Grindavík hafði betur gegn Stjörnunni í kvöld í 13. umferð Bónus deildar kvenna í Ásgarði, 83-99.

Grindavík eftir leikinn við topp deildarinnar með 18 stig á meðan Stjarnan er í sjöunda sætinu með 10 stig.

Þrátt fyrir nokkurn mun á liðunum í töflunni fyrir leik kvöldsins var leikurinn jafn og spennandi á upphafsmínútunum og voru það heimakonur í Stjörnunni sem leiddu að fyrsta leikhluta loknum, 27-26. Þrátt fyrir nokkra baráttu gestanna úr Grindavík undir lok fyrri hálfleiksins nær Stjarnan að halda forystu sinni inn í hálfleik, en þegar liðin halda til búningsherbergja er staðan 50-44.

Það var svo eins og annað Grindavíkurlið hefði mætt til leiks í upphafi seinni hálfleiksins. Þær ná að læsa leiknum að mestu varnarlega og þá komast þeirra helstu leikmenn á gott skrið sóknarlega. Grindavík nær því að snúa taflinu duglega sér í vil í þriðja leikhlutanum g leiða með 11 stigum fyrir lokaleikhlutann, 63-74. Baráttugleði heimakvenna dó þó ekki í fjórða leikhlutanum og þurfti Grindavík nokkuð að hafa fyrir því að vinna leikinn á lokamínútunum. Sigur þeirra að lokum þó nokkuð verðskuldaður og öruggur, 83-99.

Stigahæstar fyrir Grindavík í leiknum voru Farhiya Abdi með 21 stig og Abby Beeman með 20 stig. Vel að merkja átti einnig hin efnilega Þórey Tea Þorleifsdóttir frábærar mínútur af bekk Grindavíkur, 16 stig á 19 mínútum.

Fyrir Stjörnuna var Stina Josefine Almqvist stigahæst með 26 stig og Eva Wium Elíasdóttir bætti við 22 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -